Valid CSS!
...steinip.net :) ...steinip.net :)
Senda SMS
Leyfður Stafafjölldi er "95"
Símanúmer: Símanúmer:

Skilaboð: Skilaboð:

Skoðanakönnun
Ert þú komin í jólaskap..?

Ójá!!
Svona lala
Neibbs



Youtube og Símamyndband
Vinsælustu Tenglar Vikunar B2

Húsvískir Artistar Núverandi MSN Display
Föstudagurinn
30. Júlí
2010
Dagsetning Upplýsingar
Jólin nálgast! Jólin nálgast!

Jæja fólk, Þá er bara fyrsti desember kominn og styttist í jólin, og í auðvita eins og árlega tekur síðan nýjan þema jólamánuðinn og fólkið getur sótt allskyns jólalög þekkt íslensk, og til að gera þetta smá skemmtilegra





Eitt lag hér með Nögl, Snjókorn falla í góðum Rokk gír ;D

mbk, Steinip
01 Dec 2009 by Steini


Fyrir torrent elskendur Fyrir torrent elskendur

Fyrir þá sem hafa verið að spá og velta fyrir sér hversu margar og hvað af þeim er eitthvað gott og vitlegt þá er ég með smá lista yfir 4 bestu og svo fylgja hinar í restina. Muna að þetta er eins og ég sé málin ekki allir.

#1
Tengdur(Mjög flott útlit, nýtt efni og um 3600 notendur eins og er, þeir stefna að loka með boðslykla kringum 10.000)
#2
IsTorrent (Verulega flott útlit, vel forrituð og hraðvirk, um 7000 á vefnum)
#3
Kreppa (Hún virkar fínt, en á til með að slá út og verða hægvirk. um 4700 á vefnum)
#4
IceBits (Hún virkar fínt líka, en á til með að slá út og verða hægvirk.)

---

Svo koma allskonar torrent síður sem eru enganvegin að standa sig og eru hreint rugl í mínum huga.

1. Nidurhal
2. IceShare
3. IceBay

Athugið þetta er ekki tæmandi listi, en líkur að Tengdur.net, IsTorrent.net munu halda út sem lengst og hef ég mikla trú á Tengdur.net þar sem að einstaklingarnir bakvið hana eru Adam og Eva. Engin nöfn, engin styrktarreikningur innanlands á innlendri reikningstölu eða neitt slíkt, þvílík nafnleynd. Hvergi hægt að komast að einstaklingum vefjarins og er engin eigandi bakvið lénið eða þjónin.

Jæja, Njótið ykkar á nýju vefjunum. Það er búið að sanna sig að þegar SMÁÍS fer eftir 1 vef koma 3 í staðinn.

Kv, Steinip
18 May 2009 by Steini


Jæja nú er maður sáttur Jæja nú er maður sáttur

(Grein af Vísi):



Kattadrápið: Húsavík biðst afsökunar

„Þetta var of langt gengið," segir Tryggvi Jóhannsson, framkvæmda- og þjónustufulltrúi Húsavíkurbæjar, um kattardrápið á Húsavík. Hann segir að þetta sé eina tilvikið þar sem húsköttur er skotinn þar í bæ. Kötturinn Carras var skotinn af færi á þriðjudagskvöldinu af meindýraeyði á Húsavík. Ástæðan var sú að nú stendur yfir átak þar sem reynt er að losa bæinn við lausagöngu katta.

Tryggvi segir að þarna hafi verið allt of langt gengið og búið sé að ræða við meindýraeyðinn um málið.

„Þetta var klaufaskapur af mér og honum og jafnvel lögreglunni. Okkur yfirsást það að enginn má farga heimilisdýr nem dýralæknir," segir Tryggvi. Hann áréttar þó að vopnið sem meindýraeyðirinn notaði var skammbyssa með höglum sem er sérstaklega útbúinn til svona veiða.

Tryggvi viðurkennir að þetta sé leiðindamál en hann segist hafa haft samband við mann Huldar vegna málsins.

„Við viðurkennum mistökin og biðjum að sjálfsögðu afsökunar á þessu," segir Tryggvi að lokum og áréttar að ferlinu hafi verið breytt í kjölfarið og nú séu kettir í lausagöngu ekki aflífaðir, heldur verði þeir fangaðir og vistaðir í ákveðinn tíma þangað til þeirra verður vitjað, eða dýralæknir aflífi þá.



Allavega fá þeir fjöður í hattinn fyrir að viðurkenna mistök sín, taka á sig ábyrgðina og allavega biðja dýraeigendur afsökunar og breyta þessum reglugerðum í grænum kvelli, enda myndi þetta aldrei ganga upp eins og sjá má viðbrögð bæjaríbúa svo eitthvað sé nefnt.

-mbk, Steinip
08 May 2009 by Steini


Jæja látið í ykkur heyra!!!! Jæja látið í ykkur heyra!!!!

(Grein Vísis):

Meindýraeyðir á Húsavík skaut köttinn Carras innabæjar á þriðjudagskvöldinu en eigandinn, Huld Hafliðadóttir, er afar ósátt við aðfarirnar. Samkvæmt reglugerð sem bærinn hefur sett þá er lausaganga katta bönnuð í bænum.

„Ég frétti af því frá nærliggjandi íbúum að þeir hefðu heyrt tvo skothvelli," segir Huld sem áttaði sig ekki strax á málinu en hún á tvo ketti. Sá sem lifði af skilaði sér heim daginn eftir kattardrápið en hún sagði hann hafa verið verulega illa farinn. Huld fór með hann til dýralæknis sem sagði dýrið vera í nokkurs konar taugaáfalli.

„Ég fór þá að pressa á bæjaryfirvöld og meindýraeyðinn um upplýsingar um afdrif kattarins. Allr neituðu að hafa komið að þessu og bentu á hvorn annan," segir Huld en hún fékk þó að lokum játningu frá meindýraeyðinum.

„Hann játaði að hafa skotið köttinn en sagðist hafa gert það í skjóli bæjaryfirvalda," segir Huld og bætir við að meindýraeyðirinn hafi sýnt henni leyfi sem hann hafi frá lögreglunni á Húsavík til þess að bera og beita skotvopnum innanbæjar.

Huld segist vera reið bæjaryfirvöldum fyrir að beita slíkum úrræðum við að losa ketti af götum bæjarins. Hún segir að þetta geti nú sennilega ekki staðist lög. Um aflífun dýra í lögum um dýravernd segir orðrétt:

Dýr skulu aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti og eftir því sem unnt er án þess að önnur dýr verði þess vör.

Sjálf segist Huld reiðust yfir því að enginn hafi beðist afsökunar á að skjóta dýrið. Hún sé sár, og finnist málið undarlegt í ljósi þess að enginn vill gangast við kattardrápinu að hennar sögn. Hún spyr líka hvort það sé eðlilegt að menn séu að hleypa af haglabyssum í íbúðahverfum.

Aðspurð hvað hún hyggist gera í málinu svarar hún: „Ég ætlaði ekki að gera neitt. En núna ætlum við að fá lögfræðiálit á málinu."

Huld segir það leiðinlegt að missa köttinn Carras og þá sérstaklega með þessum hætti. Hún bætir svo við að lokum: „Þetta er bara villimennska."







Grein MBL hér þar sem tryggvi segjir að meindýraeyðir gangi of langt...

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/05/08/skaut_heimiliskott_a_husavik/

Orðin hans Tryggva virðast önnur í fréttinni en það sem hann skilur eftir sig undirritað á prenti í skránni.

-Steinip angry
08 May 2009 by Steini


Betra en ekkert, sýnir þó eitthvað Betra en ekkert, sýnir þó eitthvað

Þeir eru þó kærðir fyrir minniháttar líkamsárás þrátt fyrir að þetta leit nú ekkert ut fyrir að vera það í mínum augum, ef þessir drengir hefðu verið eldri þá hefði þetta verið dæmt sem meiriháttar.

(Grein frá Vísi):


Þrír piltar úr Njarðvík, allir fæddir árið 1993, hafa verið ákærðir fyrir hrottafengna líkamsárás á jafnaldra sinn og samnemanda við Njarðvíkurskóla. Árásin átti sér stað í nóvember síðastliðnum og vakti sérstaka athygli þar sem myndband af henni var sett á vefinn og vakti mikinn óhug.

Pilturinn var kýldur ítrekað í skrokk og andlit þar til hann féll í jörðina. Þá tóku árásarmennirnir til við að sparka af alefli í hann liggjandi, bæði í bak hans og höfuð. Á myndbandinu sást hvar hann fékk mjög fast spark í andlitið þar sem hann lá.

Pilturinn hlaut töluverða áverka af árásinni, en slapp þó við beinbrot og varanleg meiðsl. Hann krefur árásarmennina um eina milljón króna í miskabætur. Árásarmönnunum var vikið tímabundið úr skóla þegar málið kom upp.

Piltarnir eru ákærðir fyrir brot gegn 217. grein hegningarlaga, sem kveður á um minniháttar líkamsárás. Júlíus Kristinn Magnússon, lögreglufulltrúi á Suðurnesjum, segir að ákvörðun um að ákæra ekki fyrir meiri háttar líkamsárás hafi verið tekin í samráði við embætti Ríkissaksóknara, sem fer með ákæruvald í meiri háttar líkamsárásarmálum en lagðist gegn slíkri ákæru í þessu máli.- sh



-mbk, Steinip
06 May 2009 by Steini


<< Nýrri 1 2 3 4 Eldra >>

Youtube Vikunar |Youtube Mánaðarins |Húsvíska Safnið!
Skota Kassinn! |