
Þrír piltar úr Njarðvík, allir fæddir árið 1993, hafa verið ákærðir fyrir hrottafengna líkamsárás á jafnaldra sinn og samnemanda við Njarðvíkurskóla. Árásin átti sér stað í nóvember síðastliðnum og vakti sérstaka athygli þar sem myndband af henni var sett á vefinn og vakti mikinn óhug.
Pilturinn var kýldur ítrekað í skrokk og andlit þar til hann féll í jörðina. Þá tóku árásarmennirnir til við að sparka af alefli í hann liggjandi, bæði í bak hans og höfuð. Á myndbandinu sást hvar hann fékk mjög fast spark í andlitið þar sem hann lá.
Pilturinn hlaut töluverða áverka af árásinni, en slapp þó við beinbrot og varanleg meiðsl. Hann krefur árásarmennina um eina milljón króna í miskabætur. Árásarmönnunum var vikið tímabundið úr skóla þegar málið kom upp.
Piltarnir eru ákærðir fyrir brot gegn 217. grein hegningarlaga, sem kveður á um minniháttar líkamsárás. Júlíus Kristinn Magnússon, lögreglufulltrúi á Suðurnesjum, segir að ákvörðun um að ákæra ekki fyrir meiri háttar líkamsárás hafi verið tekin í samráði við embætti Ríkissaksóknara, sem fer með ákæruvald í meiri háttar líkamsárásarmálum en lagðist gegn slíkri ákæru í þessu máli.- sh