|
Endilega
Endilega
|
(Grein morgunblaðsins):
Fá vægan dóm þrátt fyrir hrottalega líkamsárásUnglingsstúlkurnar sem réðust hrottalega á fimmtán ára stúlku í Heiðmörk á miðvikudag munu að öllum líkindum sleppa með frestun ákæru eða skilorðsbundinn dóm. Þær gætu þó verið ákærðar fyrir frelsissviptingu, líkamsárás, fjárkúgun og hótanir. Verði þær dæmdar til að greiða miskabætur og geti ekki borgað þarf fórnarlambið að sækja bæturnar til ríkisins. Ekki eru fordæmi fyrir því að ábyrgðin falli á forsjármenn.
En ekki hvað, það væri eitthvað að Íslenska réttarkerfinu ef þær fengju eitthvað þyngra en klapp á bakið og bannað að gera svona lagað aftur. Veit að ekkert hefur verið dæmt í málinu en miðað við þessa grein, gerandi ráð fyrir að hún sé rétt eða á réttri leið þá hljómar þetta eitthvað líkt Njarðvísku drengjunum.
Endilega komið og takið unga stúlku í gíslingu í nær 2 heila klukkutíma og lemjið til óbóta, hótið lífláti og kúgið fé úr fórnalambinu í þokkabót því ef þú ert yngri en 18 ára... Þá er allt í lagi... Íslenska réttakerfið.. Við erum sanngjörn 
Hljómar sem ágætis agulýsing.
mbk, Steinip |
|
|
|
Fimmtán ára fórnalamb
Fimmtán ára fórnalamb
|
Það er eitthvað mikið að þessum stelpum sem frömdu þennan verknað, vissi ekki að svona heift væri til hjá stelpum án þess að fá samviskubit. Vonandi verður eitthvað gert í þessu loksins og þær notaðar sem dæmi til að sýna að þetta viðgangist ekki.
(Úr Grein Vísis):
Systir Hrannar var göbbuð upp í jeppabifreið við heimili sitt í gær undir þeim formerkjum að hún væri að fara að sættast við stúlku sem taldi sig eiga óuppgerðar sakir við hana. Skömmu síðar bættust sex aðrar stúlkur í bifreiðina við Suðurver. Því næst óku stúlkurnar með hana upp í Heiðmörk og gengu í skrokk á henni. Þar gengu tvær af stúlkunum hart fram og veittu systur Hrannar meðal annars höfuðhögg. Því næst var hún skilin eftir í Hafnarfirði og hótað lífláti kjaftaði hún frá. Jafnframt kröfðust þær þess að hún greiddi þeim 150 þúsund krónur í dag.
(Myndir af fórnalambi og árásarmönnum):
Karen Ósk ( Fórnalambið ) Alda Karen ( Árásarmaður #1 ) Sólrún ( Árásarmaður #2 )
1. [Heiðmerkuhrottar kærðar í dag] 2. [Móðir Heiðmerkuhrotta: "Þetta er bara rosalegt"]
Fylgjast með Ringulreið þráðnum Hér
-mbk, Steini |
|
|
|
Nokkur góð lög úr Söngkeppni FS2009
Nokkur góð lög úr Söngkeppni FS2009
|
Ég sótti nokkur góð lög úr keppninni og ákvað að skella þeim hingað til niðurhals þeir sem vilja geta átt þau, hvert lag er sirka 3mb að stærð.
(FS2009):
mbk, Steinip  |
|
|
|
Myndirnar úr Fitnesskeppninni komnar
Myndirnar úr Fitnesskeppninni komnar
|
Jæja þá eru myndirnar komnar úr Fitnesskeppninni inná. Myndasyrpan byrjar á Dýfum og svo upphífingum þar sem aðeins kepptu 4 karlar þeir Hrólfur, Bergur, Helgi og Ómar, Helgi tók ekki þátt í upphífingum. Svo komu stelpurnar fram og að þessu loknu voru aflraunir akureyrar með Drumbalyftukeppni. Eftir það byrjaði um sex leytið Model Fitness og svo Fitness Karla og Fitness Kvenna. Endilega fara og skoða myndirnar, Hrólfur var að gera góða hluti þó hann náði ekki á verlaunapallinn þetta sinn. Jóhanna frænka stóð sig frábærlega þó svo hún náði ekki heldur á Verlaunapallinn. Hennar fyrsta keppni og hún tó hana býsna villulausa.
(Úr myndasafni Steinap):
-mbk, Steinip |
|
|
|
Aaa morgun snjórinn namm
Aaa morgun snjórinn namm
|
Gaman að lýta útum gluggann kl 7 í morgun og sjá þetta
(úr Myndasafni Steinap):
Jæja, bærinn verður hvort sem er ófær í allan dag, þeir byrja ekkert að ýta við honum fyrr en snjórinn hættir.
mbk, Steinip |
|
|
<< Nýrri 1 2 3 4 Eldra >>